fimmtudagur....
NP: The things you say - Cicada ft. Dirty southMood: Æji veitiggi...
En um allt hitt sem er búið að vera að gerast...verslunarmannahelgin, afmælið mitt, "ástamálin", fjölgun mannkynsins, vinnan, menningarnótt og allt hitt stöffið, nenni ég ekki að blogga um. Set bara inn eikkverjar myndir. Alltaf þegar allt er happy go wild hjá mér, kemur eikkvað eitt atvik uppá sem nær að fokka ÖLLU öðru upp fyrir mér...WHY ME?? Þetta sökkar. Anygay. Ég ætla að fara til Danmerkur 16. október. Þeir sem vilja mega koma með segið Passoa!! Nei ekki Passoa, ég er að reyna að hætta að drekka. Segið Léttmjólk.Ég setti í þvottavél áðan í fyrsta skiptið
Ég fór í bíó í gær með Hörpu, Kiri, Mæju, Íbba og Óla. Fórum á Disturbia. Var samt búin að sjá hana áður. En samt skemmtilegra að sjá hana í bíó heldur en í fartölvu. Eftir bíó fór ég til Óla og Regínu. Þau voru eikkvað að fíflast. Og Óli var að vera obnoxious. Ojjj. Horfðum á Scream. Eða þangað til mamma hans Óla varð kúúúúreisí og ég fór heim. Var svo bara að spjalla á msn til 5 eða eikkað. Svaka trúnó í gangi. Svona er þetta krakkar mínir. En ég er farin. Nenniggi blogga ojj bra :D Djók.
Sjáumst! Kv. Sunshine


Ég og Harpa á Sólon á föstudaginn. Veivei.

Vuelveeeeeee!!!


Insomniaaaaaaaaaaaa
Np: Way I are - Keri Hilson&TimbalandMood: Fersk
Var að fatta að ég ætti bloggsíðu :P Hnjahnja. Búin að steingleyma henni. Ég fattaði í leiðinni að Krummi krútt er geðveikt líkur Joshua Alba sem er litli bróðir hennar Jessicu Alba :D Var að horfa á Alpha dog sem er bæ ðe vei awesome mynd! Og hann leikur í henni.

Here is ðe pjakkur. Alveg sláandi líkur honum Krumma krútt :)

Hérna erum við Harpa á Darude tónleikunum. Ofur ferskar :D

Eikkverjar stelpur, Deisí, Siggi, ég og DARUDE og Alex :D:D
Öööööö klára að blogga á morgun
Topp 10 !
Númer 1!
Mike Shinoda off korrs! Það er ekki að ástæðulausu sem ég skírði köttinn minn í höfuðið á honum! :D Grrr baby grrr


Númer 2!
Michael Scoefield...My baby :D


Númer 3!
Chris Evans sætalingur. Ef þið vitið ekki hver hann er þá lék hann bróður Jessicu Alba í Fantastic 4 og líka í Cellular og Sunshine.


Númer 4
Sæti sæti Justin Timberlake!


Númer 5
Paul Walker!! Gotta love him. Sjúklega sætur


Númer 6
Jason Statham. Bara harður gaur!!


Númer 7
John Leguizamo!! Görr já fokk hann er skoh flottur gaur! Enda sjóðheitt latinobeib frá kólumbíu hér á ferð.


Númer 8
Adam Brody. Sæti Seth sem allir þekkja út O.C.


Númer 10
Clive Owen. Maður verður nú að hafa einn gamlan reynslubolta líka skiljiði ;)


Laugardagur....
Mood: Hefur verið betra
Jámm kominn tími á smá blogg. Þetta verður samt stutt því ég er að fara að horfa á söngvakeppni framhaldskólanna eftir smá. Verð að styðja Adda minn og Gaua nottla líka en fyrir þá sem ekki vita eru þeir að fara að keppa fyrir FÁ og Borgó. Mjáw. En annars er ég bara búin að vera að vinna á fullu í páskafríinu og svo núna er skólinn byrjaður á fullu. Held það séu bara 9 eða 10 skóladagar eftir. Sem er hið besta mál!
Ég allavega er búin að taka svona bíó syrpu. Fór 4 daga í röð í bíó. Fyrst á Turtles, svo á Mr. Bean, svo Sunshine og svo School for scoundrels. Verð bara að segja að Turtles stóð algjörlega uppúr. Shittafokk sko hún er æðibiti. Enda var ég sjúklega mikil TÖRTLES stelpa þegar ég var lítil. Alltaf í TÖRTLES sko. Þessi bíómynd var búin til fyrir mína kynslóð! Ok ég skal hætta núna. Allavega er hún svo geðveik, ef einhver vill koma með mér á hana þá er ég alleg til í að sjá hana aftur. Maaaan!
Anygay, þá er ég barasta BÚIN að borga skuldirnar mínar í bankanum. Var nú ekki lengi að þessu. Svo er ég ekkert búin að vera að gera mikið síðustu daga. Á sunnudaginn seinasta fór ég að djamma með litlu sis. Kom henni inná Prikið með hjálp Arons. Svo fór ég með hana á ÓÐAL og hún var skíthrædd þar inni og bara uuu SUnneva getum við farið?? Hahaha líka afþví að Biggi og Sævar voru svo skotnir í henni og byrjuðu þvílíkt að rugla í henni. En mér fannst það bara fyndið. Soo er ég bara búin að vera að sússast fullt með Hörpu. Ég ætla að kaupa handa henni miða á Pendulum í ammlisgjöf :D Það verður fkn awesomeeeeee!
Anygay, nenni ekki að blogga meira, söngvakeppnin er byrjuð. Ætla að senda baráttukveðju sms í Adda. Blóbló
Kv. Sunshine
Fimmtudagur
Mood: Ekki gott

Hæ, held það sé kominn tími til að blogga. Allavega pínu. Ég ekki búin að gera það svo lengi, en það er af því að ég hef engan veginn verið í stuði til að blogga og ekki haft neitt upplífgandi að segja. Enda er ég búin að vera ógeðsleg síðustu daga. Eins og flestir vinir mínir vita þá dömpaði ég Svenna á mánudaginn í síðustu viku út af óviðráðanlegum ástæðum. Þetta var það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni og ég hef gert alveg slatta. Ég gisti síðan hjá Hörpunni minni því ég gat ekkert sofið. Svo veiktist ég allsvakalega og var búin að vera alveg ógeðsleg, þunglynd og veik í marga daga. Þá ákvað Harpan mín að fara með mig að djamma. Semsagt á laugardaginn síðasta. Þá ætlaði ég aldeilis að drekkja sorgum mínum. Fór í ríkið og keypti 700 ml stolichnaya. Svo var það þambað áður en við fórum í bæinn. Held það hafi bara verið botnfylli eftir. Allavega fórum við á Prikið til að knúsa Aron. Fórum síðan strax á Pravda því að ég vissi að Svenni djammar aldrei þar. Hann er alltaf annaðhvort á Prikinu eða Sólon. Svo þegar við vorum búnar að vera þarna soldið lengi hitti ég Gassa sem sagði að Svenni væri uppi :s ohh ég hef nú samt alveg lúmskan grun um afhverju hann kom á Pravda...anygay ætlaði ekki að tala um það. Ég forðaðist hann bara, held mér hafi tekist ágætlega upp, enda var ég með sólgleraugun góðu sem betur fer. En jæja, nenni ekki að tala um niðudrepandi hluti :( Við allavega héldum áfram að skvetta í okkur og ég held að Tommi hafi komið ég allavega fékk blackout og næsta sem ég man er að ég vaknaði á hádegi á sunnudeginum í rúminu hennar Írisar :S hef ekki hugmynd um afhverju, man ekki hvernig við fórum heim. Svo fór ég fram og Siggi var snarbrjálaður út í mig því ég hafði vakið hann kl 7 um morguninn til að láta hann opna fyrir mér en síðan var ég með lykil í vasanum....ehemm. Man ekki eftir þessu....allavega.

En svo fattaði ég að mér var ekkert batnað og á mánudaginn vaknaði eg með bullandi flensu aftur. Samt fór ég í skólann, hetjan ég. Hefði ekki átt að gera það því á þriðjudaginn var ég ógeðsleg aftur...fór nú samt í skólann í gær sem ég hefði ekki átt að gera heldur því ég er fárveik aftur núna! Hvenar læri ég eilla?!?? Ohh. Páskafríið kemur mér í lag vona ég. Ég er ekkert búin að gera neitt fleira merkilegt. Jú ég gisti hjá Aroni um daginn. En það var alveg óvart. Vorum bara að rúnta um nóttina og svo fórum við heim til hans og horfðum á Snakes on a plane og hann sofnaði og svo ég líka :S Hehe. Hvað meira? Já ég fór í bíó á The Hitcher með Mæju og Hörpu. Hún var rosa góð. En....hvað meira....já Harpan mín á ammli á morgun og Hlynur á ammli í dag og svo er held ég staffadjamm á morgun eða hinn. Veit ekki hvort ég fari. Ég er ennþá svo slöpp. Kemur í ljós
Svo kemur blessað páskafríið en ég það verður ekki mikið frí fyrir mig. Vinna vinna vinna. Það lenda akkúrat allar vaktir á miðvikudags og fimmtudags krökkunum :( Nú jæja, more money for me. Þá kannski getur maður klárað að borga þessa blessuðu skuldir.
Já svo eru það blessaðar fermingarveislurnar :O Er að fara í tvær á Sunnudaginn. Fyrst hjá Emblu og svo hjá Aroni frænda mínum sem ég hef bara einusinni hitt. Allavega. Sjáumst krakkar. Og ef þið sjáið mig úti á götu er ykkur velkomið að knúsa mig. Mér veitir ekki af smá upplyftingu :(
Kv. Sunshine

London beibí
Mood: Tjilluð
Já þá er best að blogga. Gerum þetta skipulega bara.
Hún var sko fkn awesome :D Vaknaði glæpsamlega snemma á fimmtudagsmorgninum og fór út á flugvöll. Svo lentum við í London um hádegi og fórum strax upp á hótel. Svo fórum við og fengum okkur að borða. Fórum á pizza hut. Fórum síðan í LSE að skoða. Voða gaman. Gerðum alveg fullt. Svo um kvöldið var farið á Tiger Tiger! Fkn awesome staður. Geðveikt stórt og þvílíkt vinsæll. Fórum 2svar á hann. Svo skoðuðum við fullt af túristastöðum, fengum okkur KFC og versluðum alveg endalaust. Svo heimsóttum við líka London Business School sem var alveg rosalega flottur en kostar fkn 5 millur að vera þar í 2 ár :O Við kíktum líka í Camden á eikkurn pönkaramarkað. Geðveikt spes. Við fengum ekkert smá gott veður. Það var búið að vera endalaus rigning. Það var hlýtt og gott þegar við komum og rigndi bara á nóttunni og eikkvað smá á laugardeginum og sunnudeginum. Á laugardagskvöldinu fórum við á risa klúbb sem heitir Sound og var á þremur hæðum! HANN VAR Á ÞREMUR HÆÐUM. Náðuði því? Three floors gaddemit! Hahhaa einkahúmor. Svo týndi ég krökkunum inni á Sound! Sjitt fór í panic bara. Svo var ég að leita að þeim og fór upp á efstu hæðina að leita að þeim afþví þar voru risa svalir þar sem maður gat horft niður á hjúts ass dansgólfið á næstu hæð. Þá kom eikkver perra löggugaur að reyna við mig. Þannig að ég fór. Nennti ekki að tala við hann. Hann var svo ógeðslegur. Svo fann ég krakkana um leið og ég fór niður sem betur fer. Anygay það voru krakkar úr Borgó á sama hóteli og við og við vorum allan tímann í hálfgerðri óbeinni samkeppni við þau um hvor hópurinn djammaði meira :P Spes dæmi. Edda og Heiða voru í London með Borgó :) Weird. Hef ekki hitt þær í 2 ár or sum. Svo bara í London. Hahahha. Svo nottla fór ég í heimsókn til Erlu frænku. Kemst ekkert hjá því ;) Það var rosa gott að hitta hana og knúsa hana og fá að borða hjá henni. Þetta var allavega mjög skemmtileg ferð í alla staði og er ég núna alveg djöfulli mörgum þúsundköllum fátækari en mér er alveg sama. Það var þess virði ;) Right beibis? Takk fyrir ferðina dúllurnar mínar, Þóra, Alex, Tinna, Brynja, Inga Hrund, Þór, Gunni og Sandra.
Árshátíðarvikan
Júmm, það eru svona imbrudagar sem eru eigilega alveg eins og tyllidagarnir í MK. Fáum að gera allskonar skemmtilegheit. Ég og Alex og Þóra skráðum okkur í skautaferð, kaffihúsatjill og förðunarfyrirlestur or sum en beiluðum á því síðasta og fórum á annað kaffihúsatjill. Svo fórum við í ljós líka sem var voða kósý. Svo var blessuð árshátíðin í gær. Ég gerði mig til og svona og svo kom Svenninn minn og við fórum á American Style svo skutlaði hann mér í fyrirpartý hjá Bergdísi vinkonu stelpnanna :) Það var bara gaman þarna. Þvílíkt skonsuteiti. Ekki einn einasti karlmaður í húsinu. Svo kom Arnar kærastinn hennar Alex og vinur hans og skutluðu okkur á Nasa. Við vorum alveg ágætlega hressar. Svo komu hinar stelpurnar og við dönsuðum eins og vitlisingar. Þetta var ekkert smá gaman og tíminn var geggjað fljótur að líða. Svo hringdi Svenni og ætlaði að koma að sækja mig afþví að hann er yndislegastur og Þóra Björg, Alex og Alma fengu far heim. Svo krassaði ég bara hjá drengnum því það er enginn skóli í dag :D:D YAY
Þá held ég að þetta sé orðið gott í bili. kv. Sunshine
Fann nokkrar myndir af Tiger Tiger staðnum okkar ;)




Mjá :D
yep yep
np: Hæsta hendin - Febrúarþynnka
mood: Árshátíðarskap!
Heyrðu! Þetta er sniðugt! Best að copya frá öllum öðrum.....svona væri tónlistin í bíómyndinni um líf mitt. Ég setti á shuffle á itunes...hehe:D
Í byrjun: Lasgo - Something (remix)
Æskuárin: Kai Tracid - Trance & Acid
Þegar ég vakna: Justin Timberlake - My love
Fyrsti skóladagurinn: Hooverphonic - Vinegar & Salt
Skóladansleikur (prom): Hjálmar - Kindin Einar
Útskriftin: Gummibear - Gummibear
Fyrsti vinnudagurinn: Gnarles Barkley - Necromancer
Stöðuhækkunin: Fedde le grande - Put your hands up for detroit
Hitti áhugaverða manneskju: Erick Morillo - I got the pills
Verð ástfanginn: Dr.Mister & Mr. Handsome - Boogie Woogie Sensation
Ástarsorg: DJ Tiësto - Adagio for strings
Byrja aftur saman: DJ Sona - House Baby
Trúlofunin: DJ Exos - Kokaloca (remix)
Brúðkaupið: David Guetta vs. The Egg - Love don´t let me go
Eignast barn: Chris Cornell - You know my name
Barnið flytur að heiman: Byz - Do you wanna fuck
Elliárin: Basshunter - Vi sittar i ventrilo och spelar DOTA
Þegar ég dey: Axel ft. Dabbi T - Þröngar píkur
Jarðarförin: Móri - Sírenur væla
Í lokin: Sander Kleinenberg - The fruit
Gífurlega spes :P

og.....ÁRSHÁTÍÐ Í KVELD!!!
Ég kveð að sinni.
Sunshine

Fimmtudagur!
Np: Bodyrox feat. Luciana - Yeah yeahMood: Ógla kát
Já það er bara svona! Þar sem mér leiðist alveg obbosslega mikið ákvað ég að blogga smá um gemsana mína sem ég hef átt í gegnum
tíðina
Fyrsta fékk ég árið 2000 held ég. Allavega sumarið áður en ég byrjaði á 8. bekk. Nokia 3210. Hann var yndislegur og ég sá ekki sólina fyrir honum. Ég elskaði hann eins og barnið mitt! Fólk man líklega best eftir honum sem litla gemsanum með coca-cola frontinu. Allavega notaði ég hann í 3 ár eða þangað til ég upgrade-aði árið 2003

Og þá fékk ég mér sko Nokia 2100. Hann var svona nákvæmlega eins, jafngulur líka. Hann var æðibiti. Ógla skemmtilegur og blikkaði í takt við hringingarnar! Geðveikt svalur. Ég notaði hann í 2 ár eða semsagt til ársins 2005.

Þá fékk ég fyrsta Samsung símann minn. Samsung E700. Og hann er svona líka mikið krútt. Alveg eins og á myndinni nema bara rauður.Æði biti. En ég notaði hann bara í tvær vikur eða eikkvað. Nebbla þegar ég flutti til Perú gat ég ekki notað hann og þurfti að kaupa nýjan.

Þannig að í september 2005 keypti ég ógó geggt flottan Nokia 6230 útí Perú, hann hentaði mér skítsæmilega en ég var samt svoldið svekkt yfir að geta ekki notað Samsung símann úti. Þegar ég yfirgaf Perú gaf ég Gaby símann og fór heim og hélt áfram að nota Samsung símann minn.

Ég bloggaði þessa vitleysu afþví að nýlega er ég búin að hlusta endalaust á krakkana blaðra um það hvað þau eru búin að eiga marga síma og hvað þau skemmdu marga síma á þessu ári og hvað þau keyptu marga síma í fyrra og blablabla vá aldrei myndi ég nenna að upgrade-a svona oft, peningasóun bara. Anygay. Ætlaði bara að tjá mig um þetta mál. En verð að fara. Mæjan mín er fyrir utan.
Blóbló kv. Sunshine

